Kvæðamannafélagið Iðunn

Tilurð og tilgangur

Um vef Iðunnar

Fréttir

Vísa vikunnar

Starfsemi

Stjórn og nefndir

Listin að kveða

Fréttabréf

Útgáfa


Lagboðar Iðunnar

Um lagboða Iðunnar

001-020

021-040

041-060

061-080

081-100


Bragfræði og háttatal

Formáli

Bragfræði

Rímnahættir

Rímnaþáttur

Háttatal

Orðaskrár

Eftirmáli









Vefur

Kvæðamannafélagsins Iðunnar


Lengi hefur staðið til að Kvæðamannafélagið Iðunn kæmi sér fyrir á vefnum og hefur það nú loksins orðið að veruleika.

Vef þessum er ætlað að stuðla að tilgangi Kvæðamannafélagsins Iðunnar, en í fimmtu grein félagsins segir „Rímnalaganefnd félagsins skal annast kennslu rímnalaga í félaginu og vinna að útbreiðslu og þekkingu á rímnalögum á meðal félagsmanna og almennings.
Hún skal og annast upptöku rímnalaga á segulband fyrir félagið og gera allt sem auðið er til að forða rímnalögum frá glötun.“

Vandséð er hvaða leið hentar betur til þess að kenna rímnalög og útbreiða þekkingu á þeim en einmitt að koma þeim á framfæri við almenning á vefnum.

Auk almennra upplýsinga um félagið og starfsemi þess eru hér að finna hluta lagboðasafns Iðunnar. Hér má skoða 100 fyrstu lagboða lagboðasafnsins og hlýða á valdar stemmur. Einnig er hér aðgengileg í heild sinni bókin Bragfræði og Háttatal eftir Sveinbjörn Beinteinsson, en hún hefur verið ófáanleg um árabil. Bók sú er hafsjór fróðleiks um rímnahætti og í Háttatali eru 450 vísur sem lýsa mismunandi háttum og dýrleika vísna.

Í framtíðinni stendur til að koma hér upp vísnasafni félagsmanna auk þess sem leitast verður við að koma hér á framfæri rímum og rímnaefni.

Það er von Kvæðamannafélagsins Iðunnar að gestir þessa vefs njóti heimsókna sinna og snúi héðan fróðari um rímur og rímnakveðskap. Þá er tilganginum náð.





© Kvæðamannafélagið Iðunn - idunn(hjá)rimur.is