23. ágúst - 29. ágúst 2009
Greitt hef ég lubbann og lagađ mitt fés,
lokiđ viđ freyđibađiđ.
Sötrandi á teinu sit ég og les
sunnudags Morgunblađiđ.
Sigrún Haraldsdóttir
Sendu Iđunni vísu nćstu viku á netfangiđ idunn@rimur.is.
9. mars - 15. mars 2009
Geisla yfir byggđir ber,
bárur glitra lćtur,
morgunsól er mjakar sér
milli dags og nćtur.
Sigrún Haraldsdóttir
17. nóvember - 23. nóvember 2008
Bankanna skal bjarga neyđ,
burt međ leiđa skapiđ.
Fátćklinga fylking breiđ
fljótt mun greiđa tapiđ.
Steindór Andersen
10. mars - 16. mars 2008
Til Steindórs Andersens
Aldrei gćfan í ţér dvín,
enga fann ég slíka.
Brosandi međ brennivín,
bauđst mér hákarl líka.
Magnús Jóel Jóhannsson
3. mars - 9. mars 2008
Vorleit í mars
Vaknar fluga, fer ađ leita fjólureita.
Fljúga má af öllu afli,
uns hún frýs í nćsta skafli.
Helgi Zimsen
25. febrúar - 2. mars 2008
Veđur út í vont hér fauk
vísnamannafundur.
Rímiđ brást og burtu rauk,
böndin sléttu sundur.
Pétur Eggerts
18. febrúar - 24. febrúar 2008
Fannhvítar ţekja hér flyksurnar svörđinn,
fullmikinn ţunga nú setja á börđin,
fylla upp holurnar, skorurnar, skörđin,
skínandi röđullinn hélt ekki vörđinn.
Árni Einarsson
11. febrúar - 17. febrúar 2008
Út međ hnífi auga nć,
eyra hlífa varla má.
Kjammann ríf og kinnar fć,
kjammsa stífa tungu ţá.
Kristján Gaukur Kristjánsson
4. febrúar - 10. febrúar 2008
Höldar margir heiđra sviđ
hćst ţau lengi meta,
en ţađ má kalla sóđasiđ
sína vini ađ éta.
Bjargey Arnórsdóttir
28. janúar - 3. febrúar 2008
Af ţorrabökkum fć ég fjöld,
(finna má ţar sviđin köld),
fint er matast fram á kvöld
uns fallin eru nćturtjöld
og kviđur ţrútinn síđan sér
um syndagjöld.
Kristján Gaukur Kristjánsson
21. til 27. janúar 2008
Yfir bárur ágirndar,
elligrár og slitinn,
réri árum rógburđar
rann af hári svitinn.
Ísleifur Gíslason á Sauđárkróki
14. til 20. janúar 2008
Alltaf vekur ánćgju ađ yrkja bögu
og finna hvernig orđin óma
ef ţau saman ná ađ hljóma.
Ekki er nóg ađ einblína á endarímiđ.
Höfuđstafir standi réttir
og stuđlar hćfilega ţéttir.
Ţetta er nú eiginlega enginn vandi
ef menn réttu orđin finna
sem ekki sýnist flókin vinna.
Ragnar Böđvarsson
7. til 13. janúar 2008
Ég vildi gera vísu hér
en vísnagerđ er snúin.
Ţó ég reyni andinn er
ekki reiđubúinn.
Steinn G. Hermannsson
31. desember 2007 til 6. janúar 2008
Félagarnir fagna hér
flytja kveđju hlýja.
Klárlega nú komiđ er
kvćđaáriđ nýja.
Sigmundur Benediktsson
Vikan 24. til 30. desember 2007
Yfir svífur allt um kring,
andi ţýđur jóla.
Ég ţér blíđur saungva syng,
ţá sćlleg líđur njóla.
Árni Einarsson
Sendu Iđunni tillögu ađ vísu vikunnar á netfangiđ idunn@rimur.is.
Vikan 17. til 23. desember 2007
Senn koma jól. Ţér kaupahéđnar bjóđa,
og Kristi líka, upp á góđar stundir.
Allt er falt á vćgu verđi, góđa,
og vildarkjörum, ef ađ svo ber undir.
Benedikt Jónsson