Næsti félagsfundur Iðunnar verður haldinn föstudaginn 10. maí
Að venju er fjölbreytt dagskrá á fundinum, en þetta er síðasti félagsfundur þessa vetrar. Rósa Þorsteinsdóttir segir frá verkefni Árnastofnunar: Handritin alla leið heim, og í því sambandi frá rímnahandritinu Staðarhólsbók rímna, sem fór í Dalina. Hver veit nema kveðið verði uppúr handritinu. Þá ætlar Þorsteinn Magni að kveða á fundinum nokkrar góðar stemmur. Bára Grímsdóttir hyggst svo kveða vísur upp úr vísnabók sem var í eigu móður hennar.
Svo má nefna fasta dagskrárliði: skýrsla ritara, litla hagyrðingamótið, samkveðskap, kaffi og auðvitað gert að afla Skáldu.
Allir fundir og kvæðalagaæfingar félagsins hefjast stundvíslega kl 20:00 og lýkur kl 22:30. Félagar eru hvattir til að mæta á sem flesta fundi og ekki gleyma æfingunum því þar geta menn kynnst betur innviðum félagsins og sögu. Einnig eru félagar hvattir til að taka með sér gesti, bæði á fundi og æfingar, því fundir Iðunnar eru öllum opnir.
Starfsemi félagsins fer fram í Gerðubergi sjá kort á ja.is







